Eλιν Life in the fab lane

09.02.2010 11:55:51 / nile

Kona með metnað

Það er greinilegt að þessi hefur metnað;
http://www.visir.is/article/20100209/LIFID01/897090716/-1
Alveg eins og undirrituð 8)

EN

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2010 11:18:35 / nile

Hvar á að eyða afmælisdeginum?

Eins og hefur komist í hámæli þá ætlar Jennifer Aniston að vera á ströndinni í Mexico..
Ég er hins vegar að hugsa um að bregða undir mig betri fætinum og skella mér til Feneyja;
http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2010/02/08/grimuklaeddir_hatidargestir/
EA

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2010 12:57:37 / nile

Ljótumyndband

Ég hef bara ekki komið með ljótumyndband í háa herrans tíð - svo er ekki kominn tími á eitt slíkt eða svo;
http://www.youtube.com/watch?v=p5HzDq7_so0&feature=rec-rn-2f-2-HM
Og meira að segja ljótudans í honum og allt... hvað meira getið þið óskað ykkur?

EL

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.02.2010 09:15:25 / nile

Kvikmyndaárið 2010

Frá því 01.01.2010 hef ég farið að sjá eftirfarandi myndir í bíó eða sölum HÍ;

-Kaldhæðni örlaganna, eða góða ferð í gufu
-Nikulás litli
-Bjarnfreðarson
-Það var ekki ég, ég sver það
-Hjörtun
-Sherlock Holmes
-Verndargripurinn
-Whisky
-An education
-Nine

og það eru liðnar 5 vikur af árinu, það gera því 2 myndir á viku að meðaltali!

EK

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2010 15:41:47 / nile

Dönskukennsla

Þar sem ég nenni ekki að blogga sjálf bendi ég bara á færslu Önnu Classen af pressunni frá 2. október 2009;
 

Blekkingin: Hvad siger du?

„Hvad siger du?” spurði ég danskan kærasta systur minnar þegar ég hitti þau í Kaupmannahöfn, svaka stolt af dönskukunnáttu minni.  

Hann leit á mig með furðusvip og sagðist ekkert hafa sagt. Ég varð auðvitað hissa en þá sagði systir mín mér að maður segði aðeins „Hvad siger du?” þegar maður vildi að viðkomandi myndi endurtaka það sem hann hefði sagt.

Ég varð kjaftstopp. Ég var svo viss um þetta þar sem ég hafði lært þetta í skólanum. Þetta er eitt af því fyrsta sem maður lærir og það fyrsta sem ég segi við Dani.

Þetta barst svo seinna í tal þegar ég talaði við danskan mann frænku minnar. Hann hló og sagði „Nú þegar þú segir þetta hef ég tekið eftir að Íslendingar segja þetta oft við mig.”

Mér leið betur við að heyra að þetta væri ekki bara ég sem talaði ranga dönsku en fór aftur á móti að efast um gæði dönskukennslunnar sem ég fékk í skólanum.

Hversu margir Íslendingar eru að skemmta Dönum eða pirra þá með rangri dönsku?

Góðverk dagsins er þess vegna að upplýsa ykkur, kæru pressulesendur, að í stað þess að segja:

„Hvad siger du?”

Þá eigum við að segja:

 „Hvordan går det?”


yfir og út,
EL

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2010 10:04:29 / nile

Skipulag

Þó ég segi sjálf frá þá er ég rosalega góð í því að skipuleggja, raða, taka til og ganga frá...
Hef alltaf verið hvað best í að skipuleggja veraldlega hluti; eins og að ákveða uppröðun húsgagna, taka til í gögnum, fæla, flokka og raða.
Núna er mig soldið farið að kitla í fingurna til að skipuleggja, raða og taka til í "skrifstofunni" hjá mömmu og pabba, eða gamla herberginu mínu - en því var ætlað að vera skrifstofa. Finnst það ekkert smá spennandi verkefni því ég elska að sjá árangur - fyrir og eftir.. og hvað ég hef náð að gera hlutina betri!!
Svo þegar ég hugsa útí það þá er ég farin að sýna örlitla hæfileika í því að hafa áhrif á líf annars fólks, hjálpa því að greiða úr flækjum og hugsanamynstri til hins betra (vona ég).
En einhvernveginn hef ég ekki náð að heimfæra þennan hæfileika uppá sjálfa mig, og er ég alveg í einni bendu og biðu með mínar eigin flækjur.

ER

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2010 14:34:19 / nile

Hooked á stjörnuspá

Ég er orðin vel hooked á stjörnuspánni á mbl.is
og í dag er hún svohljóðandi fyrir vatnsberann;

Vinir geta orðið ástfangnir og sambönd geta hafist skyndilega. Taktu hlutunum með ró og kláraðu það sem skiptir máli

Einu sinni var spes spá fyrir afmælisbarn dagsins.. veit ekki hvort það er ennþá - en það hlýtur að koma eitthvað stórmerkilegt þann daginn!! Enda tel ég mig vera búin að lesa í undur og stórmerka atburði í kringum mig að eitthvað svakalegt eigi eftir að gerast á afmælisdaginn minn sem er eftir 10 daga!! Allir að krossleggja fingur fyrir mig að það verði þá allavegana eitthvað gott :o

En spurning hvernig maður eigi að túlka spá dagsins... ok taka hlutunum með ró - já ég ætlaði að skrá mig úr þessum kúrsi í HÍ því mér finnst það vera of mikið stress í 2 mánuði - en svo segir; kláraðu það sem skiptir máli - skiptir þessi kúrs máli - eða skiptir eitthvað annað og stærra máli?

ET

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2010 23:00:46 / nile

Talað fyrir daufum eyrum

Já það er eins og við manninn mælt, það er ekki hægt að tala við sumt fólk sko!!
Það var ráðist á mig í dag takk fyrir, ég stökk heim og fór í gym-gallann og aftur út - þá birtist þessi litli andskoti.. lítið chiwowa kvikindi... hlaupandi frá útidyrahurðinni sinni þegar ég labba framhjá húsinu, hinum megin við götuna takk fyrir! Hann eltir mig svo hálfa götuna, eiganda druslan kallaði eitthvað á kvikindið, en ekki hlýddi það.. ég get svo svarið það ég hefði getað snappað á staðnum! Ég gargaði á eigandann í rokinu hvort að svona kvikindi ættu ekki að vera í bandi - held að hún hafi ekki heyrt til mín... þegar ég er alveg að koma að bílnum, 3 húsum frá eigandanum, sem er þá kominn útá götu, kallandi á rakkann - þá gat ég ekki setið á mér og spurði hvort hún ætti þennan hund og hvort svona KVIKINDI ættu ekki að vera í bandi? Get svo svarið það mig langaði að sparka í hund-ræksnið!
Hún lét sem hún skildi mig ekki og hélt áfram að kalla á andskotann, sem hætti ekki að gelta þótt ég væri komin inní bíl!!
Vá hvað ég hefði getað hellt mér yfir hana - en ég var á hraðferð.. glæstar vonir kl. 17.08 í gymminu - en þá virkaði stöð 2 ekki þar!! Þá var ég alveg komin á suðupunkt og get svo svarið það ef einhver hefði abbast uppá mig á þeim tímapunkti þá hefði ég án efa kýlt viðkomandi!!
ER

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2010 13:16:06 / nile

Axel og Lutz

Ég get ekki sagt annað en að ég hafi verið hissa er ég hringdi í föðurgarð í gærdag, að það væri bara verið að horfa á skauta á þeim bænum!! Ég hváði bara og hvurslags þetta væri að ég væri ekki látin vita!! Ég þurfti víst ekki að hafa áhyggjur því það var verið að taka öll herlegheitin upp fyrir mig :d Svo ég skellti mér bara í heimsókn um kvöldið og fékk skauta beint í æð!! Það er nú skárri þjónusta í svíþjóð en þar var evrópukeppnin sýnd live á svt2 - en hérna heima var bara endursýndur handboltaleikur!!
Samlandar mínir hafa því miður ekki jafn mikinn áhuga á skauta íþróttinni eins og bolta íþróttum :(
Það vakti líka mikla undrun mína að Evgeni Plushenko hefur snúið til baka á svellið eftir þriggja og hálfs árs pásu!! Hér er hægt að tala um "return of the king" en hann hafði ákveðið að hætta á toppnum á síðustu ólympíuleikum þar sem hann fékk gullið!! Svo hann snýr passlega til baka núna þar sem vetrarólympíuleikarnir hefjast í næsta mánuði!!
Hérna er svo atriðið hans á gala-sýningunni síðan í gær;
http://www.youtube.com/watch?v=ba-L-YhopVQ
En skemmtilegustu atriðin hans eru einmitt á svona gala sýningum eftir keppni - en skautastíll hans er soldið mikið rússneskur og stífur - en á galakvöldum sýnir hann svo á sér allt aðrar hliðar - eins og má sjá hér í einu af hans eftirminnilegustu atriðum;
http://www.youtube.com/watch?v=tqQbzmIcLhw (fyrir utan atriðið í eurovision 2008 auðvitað)
ES

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2010 17:26:31 / nile

Hippar

Ég prófaði Kennó í dag omg - weird place.. ég held ég hafi bara aldrei farið í jafn skrýtna byggingu!! Margar byggingar með tengibyggingum, sem heita mismunandi nöfnum - í dag var ég í "Enni" og er sú bygging á 3 hæðum, nei eiginlega 4, nema það er ekki gengið upp á 2 og 3 hæð um 1-2 stigaganga, nei nei... einn stigi liggur uppí stofur 201, 202, 301 og 301. Ef þú átt svo að fara í stofu 303 (og þú varst í 301) verðurðu að fara alla leið niður á 1 hæð og fara í annan stigagang sem liggur í stofur 203, 204, 303 og 304!!
Ekki nóg með að þetta væri skrýtið þá voru allir þarna inni eins og í saumaklúbbi, talandi um hinn og þennan kúrsinn fyrir áramót, og kennarinn var meira að segja að skila verkefnum úr kúrsi sem 90% nemenda virtust hafa sótt fyrir áramót. Svo voru allir annað hvort leikskólakennarar, kennarar, mömmur eða pabbar - já eða ömmur!!
Svo var bara ein með 1 mánaða gamalt barn með sér í tímanum!! Á allri minni skólagöngu þá hef ég ekki séð það áður, og svo ef krílið fór að vola var því bara skellt á brjóstið eða í fangið á sessunautnum!!
Já og svo voru bara 5 einstaklingar af c.a. 30-35 með fartölvur.. venjulega er tölfræðin í þeim málum 40-50% að minnsta kosti - meira að segja í fornleifafræðinni sem er nú soldið old school... en þá er kennó seriously old school!!
Þetta var soldið eins og að labba í lopapeysu og pollabuxum inní þetta scenario; http://www.youtube.com/watch?v=psDjgxwo-nU&feature=related
EU

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2010 10:18:50 / nile

Þessar tvær

Það er nánast alveg sama hvað Dido sendir frá sér - þá finnst mér það gott;
http://www.youtube.com/watch?v=E_AXIyS6GPw
Hvað þá Sophie Ellis-Bextor - ég elska svoleiðis lögin hennar;
http://www.youtube.com/watch?v=L1sKhvcABH8
E

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2010 08:54:08 / nile

Gleðilegt nýtt Rússneskt ár

En mér skilst að í dag sé nýársdagur Rússa!
Svo gleðilegt nýtt rússneskt ár :lol:
Í tilefni af rússneskum gamlársdegi skellti ég mér í rússneskt bíó í gær og sá myndina Ирония судьбы, или С лёгким паром! sem gerist einmitt á gamlársdag og nýársnótt!! Á íslensku myndi titillinn útleggjast sem; ,,Kaldhæðni örlaganna, eða góða ferð í gufu"!!
Ég, mamma og pabbi vorum öll sammála um að um snildarmynd hafi verið að ræða og skemmtum okkur ljómandi vel á þessari rússneksu ræmu!!
Þetta er önnur rússneska myndin sem ég sé með stuttu millibili, þessi er frá 1975, hin sem ég sá var frá 1980 og eitthvað... og þær eiga það báðar sameiginlegt að bakgrunnstónlistin er notuð á vægast sagt frábæran hátt! Sú tónlist samanstóð venjulega af gítar, kontrabassa og slagverki eða pianóleik í þessari mynd og nær tónlistin að vekja með manni hinar stórmerkilegustu tilfinningar!! 
Áhugasamir geta lesið allt um myndina hér; http://www.allmovie.com/work/101611
E

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2010 12:13:35 / nile

Nýtt ár

Nýtt ár hefur margt og mikið í för með sér,
Ný verkefni og nýja sigra!!
Verkefni helgarinnar voru að taka niður restina af jólatrénu, en ég dröslaði stofninum út fyrir hússins dyr og gerði mér lítið fyrir og sagaði vesalinginn í tvennt, skellti í poka og útí bíl!!
Á leiðinni þangað heilsaði ég svo kínverska ruslatunnugramsaranum sem kemur reglulega að gramsa í tunnunni minni í leit að dósum - held hann hafi nú ekki fundið mikið hjá mér - en fann eitthvað í nr. 12!!
Er þetta löglegt? Að gramsa í ruslinu hjá manni... langaði sko til að hringja á lögregluna.. finnst ekki mjög huggulegt að einhver sé að gramsa í gegnum sorpið manns á 3ja vikna fresti!!
Lét þó vera að hringja í lögregluna að þessu sinni... gekk þess í stað frá jólaskrautinu og beið eftir að mamma og pabbi létu sjá sig, en ég bauð þeim í síðbúinn hádegismat; ristaðar beyglur með rjómaosti og reyktri bleykju!! Mmmm.. ljómandi gott alveg hreint!!
Annars fer nú að styttast í afmælið hjá manni, maður verður að finna uppá einhverju skemmtilegu af því tilefni!! Hafði nú hugsað mér rómantískan kvöldverð á tapas, en það er víst ekki í boði lengur!!
E

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 40
Heimsóknir
Í dag:  51  Alls: 72043