Áramótaheit
Mér tókst að halda áramótaheitið sem ég setti í byrjun árs 2011; sem var að nota tannþráð 3x í viku - tók það langan tíma fyrir tannlækninn að sjá mun (sem ég fer nota bene til 2x á ári) - og er ekki ennþá kominn 100% árangur í þeim málum - og er það víst alveg eðlilegt, það getur tekið tannholdið langan tíma að sýna breytingu - já og svo getur verið að maður drekki of mikið af kóki og sykruðum gosdrykkjum sem hjálpa ekki til :s Ekki ætla ég þó að láta af því að drekka svarta gosdrykki verða áramótaheitið mitt fyrir næstu áramót. Kannski kók-fríir miðvikudagar? Nahh..
Ég las svona líka fína grein í kringum áramótin 2010/2011 þar sem kom fram hversu lengi það tæki mann að venja sig á nýjan ávana og hversu langan tíma það tekur að verða að venjubundnum og eðlilegum athöfnum - og samkvæmt þeirri tölfræði ætti maður að geta tekið upp 4 nýja siði/venjur á hverju ári - einn fyrir hvern ársfjórðung.
Eitthvað klikkaði það hjá mér þetta ár sem er að líða og náði bara að venja mig á einn nýjan ávana. Ég vissi ekki að ég væri svona "lélegur" nemandi, var ég nú bara reyndar búin að hugsa tvo nýja siði fyrir árið sem er að líða.. og það var tannþráðsreglan 3x í viku - svo hafði ég hugsað mér að taka upp þurrburstun x mörgum sinnum í viku... eitt fegurðarráðið að bursta húðina, það á að örva blóðflæði, minnka appelsínuhúð, örva sogæðakerfið og ég veit ekki hvað meira, allt gott... Vill ég kenna því um að ég hafi ekki ákveðið hvaða dag/daga vikunnar þessi nýji siður hefur átt að eiga sér stað, og því hefur hann farið fyrir ofan garð og neðan.
Einum nýjum sið frá 2011 gleymi ég þó að nefna - en það er meira ómeðvitaður siður - og ekki meðvitaður eins og tannþráðsmeðferðin.. það er aukinn lestur bókmennta, byrjaði reyndar á því árið 2010 (gott ár).. og siðurinn heldur áfram og endaði ég svo í bókaklúbb í kjölfarið. Mikið hvað það er gaman að lesa góðar bækur.. mesta synd sem ég veit um er að hafa farið á mis við þær í fjölda ára.. bókadellan hefur meira að segja náð nýjum hæðum, og klæjaði mig bókstaflega í fingurna þar sem mig langaði svo mikið til að kaupa kindle í DC - ég náði þó að harka dótaveikina af mér - náði að sefa hana með öðrum og ef til vill nauðsynlegri "dóta"-kaupum.  Ætla samt að fá græjuna hans frænda lánaða og prófa að lesa á henni.. kannski í næstu ameríkuferð verður fjárfest í lestrartölvu? Og mikið vildi ég að ég byggi í borg þar sem ég þyrfti að taka underground í vinnuna - þá gæti ég lesið á kindle, og hlustað á i-pod á leiðinni. Ekki myndi ég samt gera það í Barcelona - þar er maður rændur... já og eflaust fleiri borgum.. heimurinn versnandi fer - fólk er jú rænt á Íslandi líka - best að eiga bara ekki neitt - þá er engin hætta á því að því verði rænt eða hvað?
Og óvæntasta breytingin á árinu 2011? Ég hætti að borða svínakjöt... löng saga og tengist bókalestri, ótrúlegt en satt.
Ef eitthvað er að marka áramótaheit 2010/2011 hef ég verið eitthvað upptekin af útliti og heilsu, og er því áhugavert að bera saman við gróft uppkast að nýjum siðum fyrir 2012!!
Oddatöluár hafa í gegnum tíðina reynst mér verr heldur en sléttar tölur, sem er þó algjör þverstæða þar sem ég er fædd á oddatöludegi, á oddatölu ári og á bíl með oddatölu númerum. How odd is that?
En skyldi ég geta tekið upp 4 nýja siði 2012? Og hvaða siði ætti ég að hafa fyrir valinu..?
Ef marka má nýafstaðið veikinda-session þyrfti ég sárlega að fara í heilsuferð til Grikklands í 4 mánuði.. spurning hvort ég komi því fyrir inní schedulinu og efnahagslífinu - og hvort það 4 mánaða frí verði að breytast í heilsuræktarátak? Mæta í ræktina x sinnum í vinnuviku og y sinnum í fríviku? Fara út að skokka? Ég ætti allavega að eiga skó í verkið :) hehe..
Aukin bókasafns-ástundun, fara á bókasafn z sinnum í mánuði og gleyma mér þar í nokkrar klukkustundir? Og lesa fleiri bækur?
Framkvæma þurr-burstunar hugmyndina frá því í fyrra?
Og síðast en ekki síst - mikilvægasta átak ársins...
Ég komst af með Grikklands-dvölinni 2008 með því að kaupa mér örfráar flíkur í heila fjóra mánuði - var samt sögulega oft í fatabúðum, gekk inní þær nánast á hverjum degi vikunnar, mátaði endalaust mörg skópör - en keypti mér sögulega fá (miðað við hvað skóbúðirnar voru margar) keypti mér bara 4 pör, 2 þeirra enduðu í tunnunni á Grikklandi, eitt seldi ég í koló og eitt á ég ennþá.
Kannski var ég bara sátt við að vera á Grikklandi og eyða peningunum í dvölina þar heldur en líflausa hluti til að setja á fæturnar á mér? Verð að finna annað svona kefí eins og Grikkland innan með sjálfri mér.. ætli skó-innkaupin myndu ekki minnka í kjölfarið?
En aftur að mikilvægasta markmiði ársins 2012;
... sem er að fækka fatainnkaupum sögulega mikið - nánast setja mig í fata-innkaupa straff, ég á þó eftir að finna einhverja útfærslu af þessu, að sjálfsögðu verður þetta bundið við innanlands fata-straff, ef ég fer til usa þá get ég ekki haldið mig frá fata-búðum. Það er bara ekki hægt! Spurning hvort ég setji budget við innanlands-innkaup í ákveðna upphæð á mánuði - allt verður þetta að sjálfsögðu gert með markmiði, að verðlauna mig á einhverju öðru sviði og kaupa mér eitthvað annað í staðinn fyrir þann pening sem sparast á fata-verslununni... eitthvað stórt fyrir íbúðina, náttborð, höfðagafl á rúmið eða stofu-mublu?
Eða sjónvarp, 8 kg af ís?
Matarfluffan fljúgandi
Jólagjafir
Alls ekki gefa henni rafmagnstæki eða eldhúsbúnað í jólagjöf eða afmælisgjöf nema hún hafi sérstaklega beðið um það. Ps. að nefna það á einhverjum tímapunkti yfir árið að það vanti nú nýjan blandara á heimilið - þýðir EKKI að hana langi í blandara í jólagjöf!
Sem dæmi um skrautlegar jólagjafir sem ég og vinkonur mínar hafa fengið frá svokölluðum mönnunum í okkar lífi eru; steikingarpanna, pizza-ofn, makintosh og tuskubangsar!
Allt þetta er algjört nei-nei..
En það sem við viljum fá eru; skartgripir, armbandsúr, dekurpakka í spa eða á hótel, föt, skór, nærföt og ilmvötn. Í alvörunni strákar, þetta er ekki svona flókið! Og þessar gjafir þurfa heldur ekki að vera svo dýrar! Samt viljum við ekki nærfatasett úr hagkaup, skartgripi úr accesorize, eða ilmvatn eða gjafapakka úr bodyshop. Gjafapakkar úr body-shop virka handa systur ykkar en ekki konunni eða kærustunni.  Þið skiljið þetta kannski ekki - en belive you me... hlutirnir virka bara svona!
Og ef þið eruð í vandræðum með að velja föt, eða verslanir til að kaupa fötin í, eða fatastærðir. Reynið þá að taka eftir því hvar þær versla, í hvaða glugga þær eru að horfa þegar þið farið með þeim í Kringluna, hvaða skó taka þær upp í búða-rápi og skoða á alla kanta? Vitið þið ekki hvaða stærð þið eigið að kaupa, laumist þá inní skáp til okkar, og skoððið merkimiðana með stærðunum, það eru meira að segja stærðir á nærfötunum okkar líka!! Og ef þið eruð í algjöru þroti - fáið vinkonur þeirra með ykkur í lið - látið þær hlera hvað þeim langar í í jólagjöf.. já fáið með ykkur í innkaupaferðina smekklegann kvennmann úr fjölskyldunni!
Er ekki frá því að þetta eigi við þessa dagana
Það sem ég á eftir að gera fyrir jólin
Um jólastúss
Jesús, er í svo litlu jóla-skreyti-stuði að annað eins hefur ekki sést fyrr né síðar, er búin að stinga aðventuljósi og postulíns-jólatré í samband og búin að henda því útí glugga og that's it. Er eitthvað að velta fyrirr mér jólatré vs. ekki jólatré. Er bara alls ekki að nenna að fara niður í geymslu og ná í skrautið og setja það upp um alla íbúð og pakka því svo aftur niður einum mánuði seinna.  Ótrúlegt, ekki eins og geymslan mín sé langt í burtu, ég sem fer nánast þangað niður á hverjum degi, ótrúlegt að ég nenni ekki að ná í jóla-skrautið í einni af þessum ferðum!
Hvort ég kaupi jólatré eða ekki, ætli ég láti það ekki ráðast af því hvað tann-rústunin á mánudaginn á eftir að koma til með að kosta, dró svo þetta tarrot-spil - og ég trúi bara ekki öðru en að þessi tannviðgerð verði lausn á öllum vandræðunum sem eru búnar að fylgja þessari tönn sl. 10 ár; http://visir.is/section/lifid&template=spilin&SpilID=10&spur=Skrifa%F0u%20spurninguna%20h%E9r...
þarf svo að senda út jólakortin á mánudaginn - síðasti séns
kv.
Annars flokks kúnni af hópkaup?
Mér finnst alltaf eins og ég sé að fá annars, ef ekki þriðja flokks þjónustu hjá veitingahúsunum.. núna síðast í dag er ég fór með vinkonu minni á Sjávargrillið. Önnur vinkona mín hafði farið þarna áður og var svo ánægð með þetta, og því hafði ég ákveðnar væntingar til heimsóknarinnar. Jólastemming í bænum, margir að versla jólagjafir og við kíktum í nokkrar búðir áður en við fórum á veitingastaðinn. Þegar þangað er komið er staðurinn smekkfullur og svolítil bið eftir borði, þar sem það er alltaf svo mikið að gera hjá þeim í hádeginu (einmitt vegna umrædds tilboðs). Við fáum borð eftir um það bil 20 mínútur, og er vísað til sætis, það er komið með vatnskönnu og glös á borðið til okkar - og eftir nokkrar mínútur boðið matseðill. Við segjumst vera með hópkaups-sushi tilboð... þjónninn biður okkur þá um miðana okkar - sem við gefum fúslega af hendi.  Nota bene, hann býður okkur ekki einu sinni neitt að drekka. Svo líður og bíður - við klárum vatnskönnuna, sem er þá tekin af borðinu okkar og ekki komið með nýja í staðinn, eftir 30-40 mínútna bið og ekki tangur né tetur sést af matnum okkar pikkum við í einn þjóninn; sem segist ætla að athuga málið. Á þessum tímapunkti er aðeins setið á örfáum borðum á staðnum, og því mesta rushið búið. Öðrum 10 mínútum síðar, án þess að hafa heyrt neitt, pikkum við í annan þjón og spyrjumst aftur fyrir um matinn - sem kemur svo loksins 5 mínútum síðar!!
Enginn bauð okkur neitt að drekka, enginn spurði okkur hvernig hafði smakkast, enginn afsakaði töfina á matnum og þegar við fórum þakkaði enginn okkur fyrir komuna... sem gerir þetta officially að verstu upplifun minni á veitingastað hérlendis! Þarna fer ég aldrei aftur ótilneydd.  Reynsla mín af hópkaups-innkaupum hefur aldrei verið svona slæm, þó að sjaldan hafi hún verið frábær!! Humarsúpan á Austur var ok.. þjónustan ok - en ekki þannig að mig langi að fara þangað aftur. Shalimar; pínu klúður á pöntun sem átti sér stað til hliðar við - en þeir löguðu það án auka kostnaðar og gerðu allt í sínu valdi til að láta manni líða vel og lækkuðu í tónlistinni þegar við óskuðum þess. Ég held að ég setji hér punkt aftan við mína verslun við tilboðs-síður, sleppi því frekar að fara út að borða heldur en að láta þjónustufólk koma fram við mig eins og 2nd class customer.
EOS
Fleiri hrakfallasögur
Annars þjáist ég af massívri tannpínu þessa dagana.. get ekki fengið mér NEITT að borða án þess að vera að kálast úr verkjum í 45 mínútur á eftir...  er alvarlega að hugsa um að láta bara rífa úr mér þessa bévítans vandræða tönn sem hefur verið til eintómra vandræða sl. 2 ár!
Balkanskt blóð
http://www.youtube.com/watch?feature=endscreen&NR=1&v=QFYHkyszp5Y En ekki er ég að heyra þetta lag í fyrsta skipti - ég er búin að hlusta svo mikið á svona tónlist, að ég hef heyrt þetta lag á öðru tungumáli, og takturinn örlítið hraðari heldur en í þessari útgáfu!
Þá er textinn; tjík, tjík, tjík nevrali..
Aldrei hefði ég orðið góð prima-ballerína
Það hefði þó getað bjargað öðrum fætinum á mér, það er að segja ef ég hefði stundað ballett, þá hefði ég sloppið við leikfimi í skólanum, og seinna komið í veg fyrir að snúa á mér ökklann í leikfimistíma. Sbr. önnur bekkjasystir mín sem var með uppáskrifað vottorð frá ballet-kennaranum hennar að hún mætti ekki mæta í íþróttir, það væri hreinlega of mikil slysahætta!
Gleymi því heldur aldrei er annar hesturinn hans afa snéri á sér fótinn á sama tíma og mér tókst að rústa á mér ökklanum í leikfimi - hann fékk ekki einu sinni tækifæri til að lagast - heldur var hann bara felldur.
S.s. ef ég hefði verið hross á þeim tíma hefði mér bara verið slátrað, en þar sem ég er manneskja fékk ég vikur til að jafna mig og fæ að lifa með skaðanum for life.
En ætli maður hefði hvortið er ekki verið búin að margsnúa sig á balletæfingum fram að gelgju? Svo kenningin fellur væntanlega um sjálft sig.
Ég komst einnig að því hvernig ballerínurnar fara að því að dansa á táskónum, en það er lítil efnispjatla, eða gúmmí-partur sem þær setja í skóinn eða á fótinn á sér áður en þær fara í táskóna; svokallaðir ouch-pouches; http://www.5stardiscountdancewear.com/prod_Ouch-Pouch-by-Bunheads_2678_108.htm
gæti nú verið sniðugt fyrir mig að eiga svona, bara fyrir venjulega skó... en fæturnir á mér eru víst eitthvað farnir að horast... fitu-púðar á tábergi og í hælum sem eru orðnir þunnir.. og því oft óþægilegt að vera í sama skóparinu í fleiri fleiri klukkutíma, standandi og þrammandi um allar trissur.  Já eða að skella sér í fóta-lýtaaðgerð. Þá sprauta þeir fitu undir tábergið - algjör snilld.. ætla bókað í þannig!
Fyrir þá sem vilja skoða meira um balletdans, skó og fleira geta kíkt á þetta blogg; http://prima-ballerina.tumblr.com/ hérna er svo myndband sem sýnir hvernig þarf að undirbúa ballet-skóna þína áður en maður fer að dansa á þeim; http://www.youtube.com/watch?v=pX-PNqJr9z4
Kv.
Anórexía on the rise
ég hef verið heilaþvegin af fótósjoppuðum vouge, slúður og glans-tímaritum! Já og við skulum nú ekki gleyma búlgörskum myndböndum þar sem allar stelpurnar eru sjúklega mjóar með silikon í brjóstum, vörum og god knows where else.
Þegar mér var bent á dönsk músik-myndbönd.. þá sé ég bara feit læri og maga;
http://www.youtube.com/watch?v=Lo9nWMj5_5c&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=phLxLn79L20&feature=related
First thing á nýju ári - nýársmegrun...
Get ekki farið að afsala mér titlinum mjóa stelpan
Heilsubót frá náttúrunni
ætli nýleg heimsókn mín í minjagripabúð erlendis megi ekki þakka fyrir ný-kveiktan áhuga, en sú búð var bókstaflega full af grjóti.
Ég er því mikið búin að vera spá og spauglera í svona grjóti og rifja upp hvaða grjót ég á, ja grjót í skartgripaformi.. og hvaða eiginleika ákveðin steinategund á að hafa framyfir aðra tegund.
Þessar rannsóknir eru búnar að leiða mig inná nokkrar mismunandi heimasíður, og ætla ég hérna að benda á tvær;
http://crystal-cure.com/gem-healing.html og http://www.beadage.net/gemstones/gemstonesA_F.shtml
Svo er meira að segja til heimasíða sértaklega fyrir AA-fólk, steinar sem halda fólki edrú alveg stórmerkilegt; http://www.sobrietystones.com/resources/GemBook/index.htm
Jæja ekki meira um það, en allar eiga þessar síður það sameiginlegt að vera einstaklega illa uppsettar - og verð ég að viðurkenna að mér finnst þessar heimasíður með þeim ljótari sem ég hef heimsótt í seinni tíð - finnst þær eiginlega bara vera frá því að internetið varð til.
En það má finna ýmislegt sniðugt þarna inni, og á AA-síðunni er hægt að fletta upp þeim kvilla sem hrjáir þig - og þeir benda þá á ákveðna steina sem eiga að laga kvillann!
Einnig las ég á einni síðunni að þegar þú værir að velja steina í þeim tilgangi að láta þá vinna fyrir þig þá ættirðu að setja steininn í lófann á þér (venjulega í hægri hönd) og spyrja steininn hvort hann sé tilbúinn til að vinna fyrir þig. Ef þér finnst steinninn titra/víbra eða hitna í hendinni á þér er hann tilbúinn til að vinna fyrir þig. Aðrir vilja meina að steinninn þurfi ekki að víbra eða hitna í lófanum á þér - eitthver ákveðin öfl drógu þig að þessum steini, og steininn að þér í upphafi og þess vegna eigið þið saman. Svo mæla sumir með að þú hreinsir steininn, setjir hann t.d. í sturtubotninn meðan þú ferð í bað - til að hreinsa neikvæða orku útaf steininum áður en þú ferð að nota hann. Sumir sofa með stein/steina undir koddanum, við hliðina á rúminu eða ganga með steina í vasanum.
Ef þú vilt svo magna orku einhverra steina, er gott að vera með demant, en hann á að magna kraft annarra steina.
Núna sé ég mest eftir steininum sem ég var mikið að spá í að kaupa í grjóta-búðinni í USA, hann hefði örugglega worked wonders fyrir mig.. hehe
En ég á eitthvað af þessu; ef einhverjum langar að fletta upp hvaða eiginleika hver og einn steinn hefur;
Amber
Ametyst
Aventurine
Coral
Hematite
Tourquise
Mother of pearl
Svo gæti verið að ég ætti bleikan rose quartz eða tourmaline, einhversstaðar á ég svo tígris-auga... og hver veit nema ég eigi eitthvað meira.
Svo langar mig núna í moonstone, kannski hring eða eyrnalokka - þar sem ég er með hvað mesta dellu fyrir því skarti þessa dagana!
Svo er bara að skella öllu á náttborðið og láta steinana vinna fyrir mig ;) Já eða ganga með þá í vasanum ;)
Jæja ætla að skella grjótinu í sturtu og fá mér svo magnaðan bjútísleep ;)
Góðar stundir góðir hálsar
Klaufabárður.is
en á síðustu tveimur vinnuvikum er ég búin að brjóta síma, og núna síðast braut ég hillu, eða öllu heldur gaf veggfestingin sig, með þeim afleiðingum að hillan hrundi ofan á pott og braut disk!
Já og svo hrundi ég næstum því á hausinn á Laugarveginum í gær...
Meira ástandið, en þetta hlýtur að þýða að ferðin verði alveg frábær, því fall er jú fararheill.
Annars er ég búin að vera að skoða matarblogg, og er að hugsa bókablogg - deili matar-blogginu með ykkur við tækifæri... ýmislegt annað í gangi - lestur sígaunabóka continues.. ég er farin að sjá allskonar hluti í öðru ljósi.. t.d. Thessaloniki mou, þarf að komast þangað - held ég þori samt ekki í sígauna-hverfið í Istanbul - það er hreinlega hættulegt....
Hér að lokum er svo video með söngkonu - ef það má í alvörunni kalla hana það - ég er ekki viss;  http://www.youtube.com/watch?v=odXZbeMYyA4&NR=1
Áhrifagirni?
ég með unglingaveiki, nei kannast ekkert við það
samt langar mig afskaplega eitthvað af þessu,
sem er afskaplega áhrifagjarnt og unglingalegt:
http://twilightbeauty.com/
sem er alveg stórmerkilegt..
Ef ég fæ mér hund..
http://getdemotivated.com/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=6407&g2_serialNumber=1